ÁSLAUG OG REYNIR Í KØBEN...
Bara þær bestu...
06.08.2006 23:03:06 / aslaug

Síðasta færslan...

Hæ allir.
Soldið langt síðan við höfum skrifað á þessa síðu, hefur verið svo gaman og mikið að gera að við höfum bara ekki gefið okkur tíma :o

Síðan síðast...kláruðum interrailið okkar, eftir Istanbul fórum við til Sofiu í Búlgaríu, þaðan til Belgrad, svo til Ljubliana, þaðan til Venice og svo til Nice. Frá Nice fórum við til Barcelona og síðasta lestarferðin okkar var svo til Alicante þar sem mamma og pabbi tóku á móti okkur og við sóttum Ragnar bróðir og Jóhönnu kærustuna hans. Við sex vorum saman í sumarhúsi og nutum sólarinnar og héldum upp á fimmtugs afmælið hennar mömmu.
Þetta er búið að vera svo yndislegt sumar að það var hálf erfitt að koma heim og sérstaklega að fara ekki aftur til Kaupmannahafnar – við söknum dvalarinnar þar mikið.

En það auðvitað gaman að vera komin heim en við komum sem sagt heim fyrir akkúrat viku í dag. Í vikunni fengum við afhenta fyrstu íbúðina okkar sem við erum búin að vera í nánast upp á hvern einasta dag, rífa allt niður því við ætlum að skipta öllu út – mjög spennó. Svo byrjaði ég hjá efnahagsbrotadeildinni í vikunni og mér líkar ekkert smá vel, er búin að fá mjög skemmtilegt mál sem ég er að vinna í.

En þetta verður eflaust síðasta færslan inn á þessa síðu, langaði bara að enda þetta og láta ykkur vita að við ætlum ekki að halda áfram að skrifa...

Takk allir sem hafa nennt að fylgjast með okkur í vetur :D Ef einhver er að spá í að fara út sem skiptinemi þá endilega skelltu þér og eins ef einhver er að meta interrail þá mæli ég með því, það kom mér mjög á óvart hvað er gaman að ferðast á þennan hátt.
Þetta ár hingað til er búið að vera það besta!!


Love you all, Áslaug


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 17:34:35 / aslaug

Kvedja fra Istanbul

Jaeja, komin timi a sma innlegg fra okkur hjuum.

Vid erum sem sagt stodd i Istanbul tessa dagana, komum i morgun eftir 22 tima furdulega notalega lestarferd. Vid fengum ser klefa med svaka finu rumi og vaski og alles tannig ad tetta var bara afsloppun - okkur veitti eiginlega alveg af sma pasu eftir allan hamaganginn sidustu vikuna.

Sidan sidast - eftir Krakow forum vid med naeturlest til Budapest. Tad var mjog fint i pestinni og vid skodudum okkur um, forum i ungverskt bad, fylgdumst med Itolunum i HM og hofdum tad nice.

Eftir 3 daga stopp tar tokum vid enn a ny naeturlest til Sibiu sem er litid torp i Transylvaniu i Rumeniu. Tad var reyndar sma lestarvesen tar a ferd tar sem vid attum ad skipta um lest i Simeriu i Rumeniu - vid hins vegar gerdum okkur ekki grein fyrir timamismun a Rumeniu og Ungverjalandi tannig ad vid vorum klukkutima eftir a og misstum af lestinni. Nadum hins vegar naestu lest 3 timum seinna tannig ad tad reddadist. Simeria er samt ekki alveg baerinn til ad vera fastur i, eitthvad of litill og lens... A stuttri gongu um baeinn saum vid endalaust af villuhundum, gamla menn ad sla med orf og lja, leigubilstjora ad byrja daginn med nokkrum bjorum a baejarkranni og hus sem madur hefdi ekki torad ad skella hurdum inn i.

Eftir 2 daga i Sibiu, sem er mjog cosy og notalegur baer, tokum vid lestina til Bucarest. Vorum maett tangad kl. 5 ad morgni og hofdum tima til rumlega 1 til ad skoda okkur um baeinn tar til vid tokum lestina hingad til Istanbul. Bucarest er hrikalega oheillandi borg, stalinistadur arkitektur aberandi, bilaumferd bilun, endalaust af betlurum og folkid ekki mjog vinalegt, allavega ekki mikid fyrir turista. A lestarstodinni var eg ad leita ad hradbanka og spyr einn starfsmanninn hvort hann geti sagt mer hvar naesti ATM vaeri. Hann svarar - if you buy me coffee I will tell you. Eg helt ad hann vaeri ad grinast og kreysti tvi ut hlatur en hann var alvarlegur sem steinn tannig ad eg helt afram og fann hradbankann a eigin spytur!!

Folkid i Tyrklandi er hins vegar alger andstaeda, allir mjog almennilegir og vilja allt fyrir mann gera. I dag forum vid a Grand Bazar, kiktum a Aya Sophiu og a Blau moskuna. Tetta er allt mjog spennandi og framandi og i kvold aetlum vid ad chilla a hostelbarnum sem er upp a taki med brjaludu utsyni yfir borgina. Annars er vedrid lika truflad og buid ad vera tad allan timann, fyrir utan nokkur sky annad slagid. Vid erum tvo bara svaka hamingjusom med tetta allt saman og bidjum ad heilsa heim.

Bestu kvedjur,

Aslaug


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 11:12:47 / aslaug

Inter-rail

Saelir sveitungar.

Nu er interrailid okkar byrjad... hurra fyrir thvi. Thad byrjadi nu eiginlega a Hroarskeldu a fimmtudaginn og thad er skemmst fra thvi ad segja ad Hroarskelda var gedveik. Vid saum Deus (godir), Sigurros (gedveikir), Guns 'N Roses (alveg lens), Bob Dylan (godur), Morrissey (gedveikur), Death Cab For Cutie (gedveikir), Scissor Sister (god), Raconteurs (godir), The Strokes (godir), Franz Ferdinand (godir), Kayne West (gedveikur), Roger Water ur Pink Floyd (gedveikur) og svo bara fullt fleira, man varla allt, Primal Scream, Tool, Kaiser Chiefs og bara endalaust mikid. Vedrid var algjor andstada vid thad sem var fyrir 2 arum thegar vid forum sidast, ekki einn rigningardropi og i raun ekki eitt einasta sky, bara blankalogn, vel yfir 25 stig og bongoblida :haha:

Eldsnemma a manudagsmorgun forum vid sidan af stad med bakpokana okkar og fyrsta stop var Berlin. Vorum thar i gaer og fyrradag, skodudum Berlinarmurinn, Brandenburgarhlidid og endalaust meira (nenni ekki ad telja allt upp). Thad for ekki fram hja neinum ad HM i fotbolta er i Thyskalandi, allt morandi i HM-varningi og fotboltafrikum og um kvoldid atti sidan ad syna leikinn a fullt af risaskjam i storum gardi og var buist vid milljon manns i gardinn :!:

Vid hofdum tho ekki tima til ad glapa a leikinn thvi vid tokum naeturlest til Krakow i Pollandi i nott og thad var nu upplifun ut af fyrir sig. Their sem eru haldnir innilokunarkennd aettu ad halda sig fra naeturlestunum. 6 saman i sveittum klefa, svona Gulag-style... en thad kom tho a ovart hvad madur svaf bara eins og steinn. Fint ad taka svona naeturlestir thvi madur sparar pening i gistingu og eydir ekki dyrmaetum tima yfir daginn i lestarferdir. Alla vega nu er madur bara staddur a internet-cafe i Krakow og eg verd ad segja ad mer list feitt vel a thessa borg (svona vid fyrstu syn) og svo er hostelid okkar massa-fint. A morgun er sidan ferdinni heitid i Aushwitz-utrymingarbudirnar (orugglega vitlaust skrifad hja mer) og svo veit eg ekki meira. Reynum ad blogga aftur einhvern timann fljotlega.

Kvedja fra Krakow,

Reynir


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 14:42:40 / aslaug

Ó Nonni, Ó Nonni, hví hefur thú yfirgefid mig!!!

Blessadir hausar. Líkt og gløggir lesendur hafa nú thegar áttad sig á thá er ég ekki lengur med íslenskt lyklabord og er thad af thvi ad vid erum búin ad senda tølvurnar okkar heim ásamt svona um thad bil øllu ødru. Madur er rétt svo med føtin sem madur er í núna, nokkrar nærbrækur til skiptana og svo bakpokann sem ég ætla med á Inter-railid. En thad er nú líka bara morgundagurinn eftir og svo Hróarskelda og Inter-rail.

Annars er búid ad vera nóg ad gera sídustu daga. Elsa ”ófríska” systir og Thorvadur Snær, litli frændi, voru í heimsókn hjá okkur um helgina og thad var ýmislegt brallad. Vid byrjudum á ad fara í Tívolí á føstudag, dýragard á laugardag, til Odense ad heimsækja danska ættingja á sunnudag og svo var verslad og slappad af á mánudag… mega stud! Get thvi midur ekki sett inn neinar myndir núna thar sem ég er á einhverju lensudu bókasafni úti í bæ.

Vinkonur Áslaugar, dúfurnar, halda áfram ad ofsækja hana. Thegar vid komum heim á føstudaginn voru dúfur búnar ad skíta út allan stigaganginn í blokkinni okkar og ein theirra búin ad verpa á útidyarmottu í ganginum… ótholandi kvikindi.

Leigubílstjóri sem ég spjalladi vid í gær sagdi mér ad 38.000 af theim 79.000 hausum sem keyptu sér mida á Hróarskeldu hafi mætt á sunnudaginn, fyrsta daginn sem svædid opnadi en tónleikahald hefst thó ekki fyrr en á fimmtudaginn… thannig ad studid er byrjad á fullu. Vedurspáin fyrir helgina er sídan 25-27 stig og heidskýrt thannig ad thad lofar mjøg gódu. Spurning hvort ad verdid á midunum á svørtu hækki kannski ennthá meira.

Thad eru sídan bara thrír dagar eftir í vinnunni og eftir thad heiti ég thví ad thrífa aldrei skítug klósett aftur, nema kannski eftir mig og mína nánustu. Verdur ørugglega mikid grenjad á føstudaginn thegar madur knúsar alla Pakistanana, Tyrkina og Sómalana bless. Madur er búinn ad eiga svo mørg vandrædaleg móment med thessu lidi ad manni er actually farinn ad líka vid thau :haha:

En núna er Brasilía-Ghana ad byrja svo ég verd ad slútta thessu.

 

 



Adios amigos,

Reynir


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 19:39:45 / aslaug

Endalaust gaman...

Jæja þá er Reynir loksins búinn í prófum!! Fór í prófið sitt í gær og gekk líka svona vel, fékk 10 :D Við kíktum svo til Malmö í gær, ég dýrka þann stað – get dundað mér endalaust í alls konar design húsgagnabúðum og öðrum skemmtilegum búðum sem þar er að finna. Við ætluðum svo að horfa á Svíþjóð-England þar í gærkvöldi en það var hægara sagt en gert, allir staðir voru útúrtroðnir – maður hefði þurft að panta borð fyrir vikum síðan...

 

Í fyrradag hitti ég svo aðeins Evu Harðar og Lalla kærastann hennar ásamt vinum þeirra. Fórum í garð rétt hjá Nörrebro. Þar hittum við mjög krúttlega tætibusku sem tætti upp úr veskjunum okkar og tók upp jarðaber sem við vorum með og klíndi í kjólinn sinn...hún var svo sæt að ég set inn eina mynd af henni :lol:



Í dag fórum við út á lestarstöð og keyptum Interrail miðana okkar. Pöntuðum líka lestir á fyrstu tvo áfangastaðina, Berlín og Krakow. Þetta lítur mjög vel út og við erum búin að setja upp gróft plan yfir helstu staðina sem okkur langar að fara á. Það er samt erfitt að plana þetta mikið fyrirfram, maður verður að láta þetta soldið bara ráðast. En við stefnum allavega á Berlín, Krakow, Búddapest, Sibiu í Rúmeníu, Dubrovnik í Króatíu, Venice, Milano, Barcelona og svo ætlum við að enda í sumarhúsi rétt hjá Benidorm með mömmu og pabba og Ragnari og Jóhönnu. Ef einhver hefur komið á einhverja þessa staði þá megi þið endilega senda okkur tips á maili, hvað er skemmtilegt að skoða og svona...
Annars sé ég mest eftir að hafa ekki keypt aukamiða á Hróarskeldu. Ég sá á netinu áðan að það er verið að auglýsa eftir miðum og menn eru tilbúnir til að borga 40 þúsund fyrir miðann. Maður hefði getað grætt á þessu!!

En áfram jafntefli Holland-Argentína!! Við vorum nebbla að tippsa :haha:

- Áslaug -


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 10:02:54 / aslaug

Á leið heim úr Aldi...


Ég fór út í Aldi að versla í gær. Það var geggjað veður og ég með þunga poka þannig að ég settist í smá sólbað á einum bekk sem er í götunni við hliðina á okkur. Eftir smá stund kemur kall milli fimmtugt og sextugt;

Kall: Hi, can I have a seat?

Ég: Yeah sure (og færði klósettpappírspakkninguna og pokana þannig að hann gæti sest)

Kall: You speak good english

Ég: Thank you

Kall: Are you Danish?

Ég: No, Icelandic

Kall: I´m from India

Ég: Ok

Kall: Are you tourist here?

Ég: No, I live here temporary

Kall: I have lived here for 16 years

Ég: Yeah, ok

Kall: Are you expecting someone?

Ég: No, I´m just on my way home

Kall: Do you do sex for money?

Ég: Me? No, no, no..!!

Kall: I can pay you good money for sex!!

Ég: No, no – thank you (hneyksl!!!)

- vandræðaleg þögn -

Kall: Ok, have a nice day

What is wrong! 8| Ég var með fulla poka af matvörum og klósettrúllupakkningu – hefði haldið að það væri góð vísbending um að ég væri EKKI í þessum hugleiðingum, jafnvel þó að ég hafi verið stödd í hverfi mellna...


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 19:55:57 / aslaug

Dekstur og gott veður...

Jæja, þá er kominn tími á nokkrar línur frá okkur skötum. Við erum nú búin að bralla ýmislegt síðan síðast. Mamma og amma komu til okkar á fimmtudaginn í síðustu viku og þær voru hjá okkur í viku. Við vorum með bíl þannig að við gátum farið út um allar trissur, t.d. Helsingør, Roskilde, Malmö, Dragør á risamarkað og alls konar skemmtilegt. Það var alveg frábært að fá þær í heimsókn og þær dekstruðu þvílíkt við okkur :haha:











Veðrið er búið að vera truflað gott núna í viku, 25-30 stiga hiti nánast upp á hvern einasta dag. Síðustu tveir dagar hafa verið frekar skýjaðir og smá rigning í dag, eins og tilheyrir svo sem á 17. júní. Í kvöld hefur hins vegar verið mjög gott veður og við Reynir fórum út að borða á Mexikóskan veitingarstað og sátum úti og höfðum það nice. Röltum síðan niður á Nyhavn – ekkert flottara en að koma þangað á kvöldin í góðu veðri, svo ótrúlega mikið af fólki. Núna er hins vegar verið að horfa á leikinn, Ítalía-USA, en allir leikirnir eru sýndir í opinni dagskrá hérna þannig að það er ekki mikið annað í sjónvarpinu á heimilinu þessa dagana :|
Allir leikirnir með Brasilíu eru svo sýndir úti á risaskjá hérna nánast í garðinum hjá okkur þannig að það er massíf stemning – förum þangað annað kvöld.

Reynir fer svo í prófið sitt á þriðjudaginn – það verður frábært þegar það verður búið. Annars er nú svo stutt eftir hjá okkur, tvær vikur á mánudaginn þangað til við leggjum af stað á interrailið eftir Hróarskeldu! Dagskráin fyrir hátíðna kom inn í gær og Reynir situr sveittur við að reyna að skipuleggja hvernig hann getur komist yfir að sjá öll böndin sem honum langar að sjá. Fróðir menn segja að það séu óvenju mikið af góðum böndum í ár – enda er orðið uppselt sem er frekar óvenjulegt svona snemma er mér sagt. Annars hef ég ekki mikið vit á þessu, mig langar að sjá einhver fimm bönd en svo elti ég bara Reyni :lol: 

- Áslaug -


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 19:07:16 / aslaug

Dúfu druslur...

Ég er gjörsamlega búin að fá mig fullsadda af dúfum hérna úti!
Þeim er búið að fjölga ótrúlega mikið á síðustu tveimur árum og þær eru út um allt núna. Ráðhústorgið er fullt af þeim og það er að verða eins og í London forðum daga. En við hjólum fram hjá þremur vötnum á leiðinni í vinnuna og á leiðinni eru rugl mikið af dúfum. Yfirleitt gengur að hjóla bara áfram að þær færa sig en það eru alltaf nokkrar þverar sem bara sitja sem fastast. Ég reyni yfirleitt að hjóla bara fram hjá þeim þveru en stundum eru þær svo margar í hóp að það gengur ekki. Ég lenti einmitt í þessari aðstöðu í morgun – ég sá framundan dúfnahóp og ég hjólaði að þeim en þær færðu sig ekki fet. Það endaði með því að ég var komin alveg upp að hópnum og þegar ég sá fram á árekstur skransaði ég á hjólinu eins snöggt og ég gat. Þar sem við erum að tala um malargangstétt og bara eina virka bremsu vildi ekki betur til en svo að hjólið datt á aðra hliðina og ég af því og meiddi mig geggjað mikið í hendinni :evil: Ekki vildi ég klessa á þessar druslur - ég er viss um að ef ég hefði storkað þeim þá fengi ég hvíta klessu í hárið í fyrramálið...

Annars verð ég að hætta að segja frá óhappasögum af hjólinu – menn eru farnir að halda að ég sé eitthvað klaufsk á því :o

Yfirmaðurinn okkar í vinnunni hætti skyndilega í morgun – við Reynir vorum reyndar búin að gruna hana um drykkfeldni eða alvarlegt þunglyndi því hún er annað hvort alltaf í fríi eða veik þannig að þetta kom ekki á óvart. En það er sem sagt valdabarátta innan vinnunnar núna, hvaða skúrka verður næsta yfirskúrka – þetta er allt mjög spennandi!! 8|

Ég var að sækja bílaleigubíl áðan – ótrúlega skrýtið að keyra, hef ekkert keyrt síðan í janúar!

En best að fara að leggja sig smá – sækjum gestina út á völl í nótt.

- Áslaug -


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 19:49:05 / aslaug

Nokkrar línur...

Allt gott að frétta af okkur Reyni.

Veðrið alveg frábært og spáin mjög góð, á að vera um 22-23 stiga hiti um helgina. Að liggja í sólbaði út í garði er þannig ofarlega á planinu 8)

Ég á svo pantaðan tíma í litun og klippingu á morgun – trúi því bara ekki að ég hef ekki farið síðan áður en ég kom út!! Tíminn líður of hratt....

Mamma og amma eru svo að koma í heimsókn á fimmtudaginn – það er alltaf nice að fá fjölskylduna í heimsókn...

Annars eru bara 20 dagar eftir í vinnunni – svo er það bara Roskilde og Interrail. Við Reynir erum búin að vera að panta hostel fyrir ferðina, það er verða komin ágætis mynd á þessa reisu – þetta verður ótrúlega gaman og ég bara get ekki beðið :haha:

Svo er verið að skipuleggja þvílíka gelluferð til Benidorm í ágúst – vá hvað mig langar með!! Ég verð að skoða það betur!!

Skuggalegt morð sem annars var framið hérna í Kaupmannahöfn í nótt - maður stunginn til dauða af ekki annarri ástæðu en þeirri að eiga ekki sígarettu...maður verður alltaf hálfhræddur þegar maður heyrir svona fréttir sem gerast nálægt manni :|

En bið bara að heilsa í bili,

Lov - Áslaug


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 12:47:05 / aslaug

Oasis, próf og hóruhús

  1. Definitely Maybe, Oasis
  2. Sgt. Pepper’s Lonely Heart’s Club Band, Bítlarnir
  3. Revolver, Bítlarnir
  4. OK Computer, Radiohead
  5. (What’s The Story) Morning Glory?, Oasis
  6. Nevermind, Nirvana
  7. The Stone Roses, The Stone Roses
  8. Dark Side Of The Moon, Pink Floyd
  9. The Queen Is Dead, Smiths
  10. The Bends, Radiohead
  11. The Joshua Tree, U2
  12. London Calling, The Clash
  13. The Beatles (Hvíta albúmið), Bítlarnir
  14. Abbey Road, Bítlarnir
  15. Up The Bracket, The Libertines
  16. Never Mind The Bollocks Here’s The Sex Pistols, Sex Pistols
  17. Led Zeppelin IV, Led Zeppelin
  18. The Rise And Fall Of Ziggy Stardust And The Spiders From Mars, David Bowie
  19. A Night At The Opera, Queen
  20. Is This It, The Strokes

 

 

Sá þetta áðan á mbl.is. Þetta eru niðurstöðurnar í könnun NME á bestu plötum allra tíma. Hvað þetta rugl á að fyrirstilla veit ég ekki. Og að Oasis eigi bestu plötu allra tíma.... komm on!!! En svona er smekkur fólks misjafn. Persónulega hefði ég viljað sjá plöturnar Dögun með Bubba, Loftmynd með Megas og meistaraverkið Kemur & Fer með Innvortis á þessum lista.... kannski næst.

Annars var ég að fá að vita það að prófið mitt verður 20. júní sem gefur mér 10 daga til að slappa af í Køben eftir próf. Maður er náttúrulega frekar svekktur með þetta.... hefði viljað ljúka prófinu sem fyrst til þess að hafa það ekki hangandi yfir mér í sumar. En eins og einn af mínum spakari vinum myndi segja: ‘Það þýðir ekki að gráta brotið kerti.’ Maður verður bara að reyna að stressa sig ekki of mikið á þessu og síðan er veðurspáin fyrir næstu daga þannig að maður getur kannski fljótlega farið að skella sér í sólbað í einhverjum almenningsgarði með bók í hönd.... verð alveg ógó brúnn í prófinu og þá er bara aukaatriði hvort maður nær eða ekki.

Skellti mér á International Night á Studenterhuset í gærkvöldi. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta svona bjórkvöld fyrir erlenda skiptinemanörda sem er alltaf einu sinni í viku. Gerði síðan alveg magnaða uppgötvun á leiðinni heim. Tók þá eftir því að það er hóruhús í kjallaranum á blokkinni minni. Alla vega voru rauð flúorljós í glugganum og stóð ‘Åben’ á hurðinni... lagði saman tvo og tvo og fékk út vændi! Skrýtið að maður hafi ekki tekið eftir þessu fyrr. Þetta er reyndar hinum megin í blokkinni okkar sem er í laginu eins og U þannig að í raun tilheyrir þetta ekki sömu götu. En hvað um það, ég er farinn að læra.

 

Kv. Reynir

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 11:19:37 / aslaug

Löng helgi...

Það er búið að vera notalegt lífið undanfarna daga. Við fórum í vinnuna síðast á miðvikudaginn og förum ekki aftur fyrr en í fyrramálið. Það er því búið að vera útsof upp á hvern einasta dag sem er bara draumur!

Ragnar bróðir kom til okkar á fimmtudaginn og er búinn að vera hjá okkur alla helgina, fór í gærkvöldi. Það var alveg frábært að fá hann í heimsókn og við höfðum það mjög gaman og gerðum ótrúlega margt skemmtilegt. Á fimmtudaginn héldum við upp á afmælið hans Reynis og á föstudaginn fórum við til Malmö. Þar var m.a. stoppað á Subway – og vá hvað hann var góður J Svo röltum við í búðir í bænum, fórum í Tivoli og bíó og kíktum í Christianiu þar sem við Reynir keyptum okkur annað málverk :D Fyrir utan það fórum við svo auðvitað bara út að borða, kjöftuðum heima og höfðum það nice....











Annars er Reynir byrjaður aftur að læra undir prófið sitt, ekki ennþá komin dagsetning á það sem er nottla alveg fáránlegt. Ég er bara að hafa það nice, laga til og er á leiðinni út í Torvuna að versla. Svo þarf ég nú að fara að drífa mig í klippingu og litun – alveg kominn tími á það!

Ég veit ekki hvort þið sáuð það en á mbl.is á föstudaginn var frétt um það að Himmelskibet, nýja tækið í Tivoliinu, bilaði og stoppaði efst upp með fullt af fólki. Tækið er ekki búið að vera í notkun fyrir almenning síðan en gaurarnir eru búnir að vera að prufa það á fullu með hvítum dúkkum í tækinu – geðveikt fyndið að horfa á það :lol:



Bið annars að heilsa í bili,

- Áslaug -


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 08:12:30 / aslaug

Hallelúja...

 

 

Jæja þá er síðasta prófinu lokið! Vá hvað ég er ánægð :haha:, trúi því bara varla að sumarið sé að byrja – engar skuldbindingar eftir kl. 10 á morgnanna!! Þvílíkt sem ég ætla að njóta þess að vera hérna í yndislegu Kaupmannahöfn og hafa það gott.

Prófið í morgun gekk líka bara vel þannig að ég útskrifast með 10,33 í meðaleinkunn héðan, nokkuð sátt með það...

En annars má ég nú varla vera að því að hanga inni og blogga núna – gott veður úti og ég þarf að fara í bæinn og finna afmælisgjöf fyrir Reyni fyrir morgundaginn.

- Áslaug -


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 13:34:10 / aslaug

Ding, ding, ding

Hvar er ísbíllinn þegar maður þarf á honum að halda 8|
Ég er svo upptrekkt af spenningi að vera búin í þessum blessuðu prófum á morgun að ég þarf innilega á góðum ís að halda til að róa mig niður....



Annars er þetta ótrúlega sniðugt fyrirbæri - kaupi mér pottþétt sendibíl og bjöllu og fylli hann af ís og keyri um götur Reykjavíkur ef ég fæ leið á lögfræðinni....

- Áslaug -


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 19:29:59 / aslaug

iss, piss

Jæja, kominn tími á smá update frá Köben, erum ennþá á fullu í próflestri þó að við séum kannski ekkert allt of dugleg þessa dagana. Erum núna að flakka á milli American Idol og Eurovision, frekar lens! Það er frekar svekkjandi að Silvía hafi ekki komist áfram þó maður hafi nú ekki búist við því. Það er samt ágætt að heyra að hún sé ekki af baki dottinn: „Ég ætla að fara á annan stað, þar sem er eitthvað af fólki með heila, skilurðu. Ég ætla að fara til Ameríku þar sem ég á fullt af frægum vinum og þar sem ég ætla að gera nýja plötu með Silvíu Night. Ógeðslega töff plötu fyrir alla sem eru töff, en ekki fyrir einhverja júrótrass-lúða í buffalo-skóm, því þeir vita ekki einu sinni hvað er töff, skiluru.“ Shit hvað hún er klikkuð! Síðan sakaði hún sænsku gelluna um að hafa sofið hjá dómurunum, sagðist hafa séð þau gera það í bíl fyrir utan hótelið þeirra :haha:

Ég hvíldi mig aðeins á Idol, Eurovison og öðru slíku bulli og fór og hlustaði á alvöru tónlist í gær. Fór á tónleika á VEGA með Belle & Sebastian (fyrirgefðu Snæi). Hitti þar Hauk, Öglu og co. og skemmti mér yfir ótrúlega flottum tónleikum. Labbaði út alveg hrikalega sáttur eftir eina bestu tónleika sem ég hef farið á.

Kv. Reynir


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 12:13:29 / aslaug

Persónulegasta könnun sem ég hef tekið...

Við Reynir vorum að fá senda könnun frá skólanum, svona end of season könnun sem er skylda að svara þannig að skólinn sendi heimaskólanum upplýsingar um námið og eitthvað. Þetta var svaka langur spurningalisti um kúrsana, skólann og alls konar + ótrúlega persónulegar spurningar 8|...leyfi ykkur að sjá nokkrar vel valdar:

 

 

2.1.4 How often are you 'partying'?

 

 



2.1.6 Are you drinking more alcohol here than you would have done at home?

 

 



2.1.11 Are you more sexually active during your time here in Copenhagen than you would be at home? (Eg. have you had more partners here in Copenhagen than you would usually have back home?)

While this may be a sensitive question, please take your time to answer it

 

 



2.1.12 Do you feel that you have been experimenting sexually whilst here in Copenhagen?
While this may be a sensitive question, please take your time to answer it.

 

 



2.1.13 Do you feel that you have been experimenting with drugs here in Copenhagen?
While this may be a sensitive question, please take your time to answer it

 

 



2.1.14 Do you have a boyfriend/girlfriend/spouse back home?

 

 



2.1.15 If you do not have a boyfriend/girlfriend/spouse back home, is that because....

 

you broke up with him/her just prior to going to Copenhagen?

you broke up with him/her during your stay here in Copenhagen?

None of the above / other



2.1.16 If you in the above noted that you had broken up with your boyfriend/girlfriend/spouse during or just prior to your stay in Copenhagen, could you kindly explain why that was?

Eg. "Our relationship was not strong enough to endure such a long time apart" etc.

- Áslaug -


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7